Terms of service
Almennt:
Neytendur eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun Eyjadýr, eyjadyr.is.
Um notkun vefsíðu og vefverslunar eyjadyr.is gilda skilmálar þessir. Með því að nota vefsíðu og vefverslun eyjaadyr.is samþykkir og viðurkennir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma. Sigdór Smiður ehf, kt. 700321-1420, er staðsett að Helgafellsbraut 18. Símanúmer er 853-6488.
Sigdór Smiður ehf áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.
Verð:
Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur. Sigdór Smiður ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.
Vörur til einkanota:
Vörurnar í vefverslun eyjadyr.is eru eingöngu til persónulegra nota. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum eyjadyr.is án tilskilinna leyfa. Eyjadýr áskilur sér rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda eftir hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.
Nákvæmni upplýsinga:
Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.
Greiðsluleiðir:
Hægt er að inna greiðslu af hendi í vefverslun með greiðslukorti. Sigdór Smiður ehf er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt.